Guðrún&Indíana&Björk&Binna&Elín&Helga

*Girls just wanna have fun*

28.09.2008 17:07:06 / bjalla

Vá langt síðan seinnast

Jæja vá hvað er langt síðan einhver af okkur hefur bloggað hérna.. ég var eikkað að vafra á netinu og rakst inn á þessa síðu og langaði að prófa að taka eitt blogg á þetta og sjá hvort ég myndi fá einhver viðbrögð;)
En allavega er allt gott að frétta af mér.. ég er flutt suður núna og er í tækniskólanum að læra flugið og taka stúdentin með.. Björk og Indiana eru farnar frá okkur til Danmerkur í lýðháskóla þar og verða fram að áramótum;) held að þeim leiðist ekki þar.. hehe.. síðan eru Binna og Elín en í MA að gera góða hluti;)

Ætla nú ekki að hafa þetta lengra en endilega kommenta á þetta;)

Guðrún;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:54:21 / bjalla

Jaaahá..

Tíu hlutir um mig: 1. Ertu í sambandi? Neimm;)

 2. Ertu hamingjusöm/samur? já mjög svo:D

3. Leiðist þér? Nei aldeilis ekki

4. Ertu sorgmædd/ur? Nei

4. Hvernig er hárið á þér? Það er brúnt í augnablikinu

5. Augnlitur? Grænblá..

6. Afmælisdagur? 1 Júní

7. Skap? Það er missjafnt sko;) en gott núna !

8. Um hvað ertu að hugsa? Að ég ætli ekki að svara í símann

9. Nothæf/ur? jájá það held ég

10. Örvhent/ur eða rétthent/ur? rétthent

Tíu hlutir um ástarlífið:

1. Hefuru verið ástfangin? Já það hef ég sko verið ! 

2. Trúiru á ást við fyrstu sín? Já ég geri það reyndar

3. Afhverju entist síðasta sambandið þitt ekki? Mhhhh.. bara gekk ekki upp

4. Hefur einhver sært þig? Jáá..

5. Hefur þú sært einhvern? já því miður

7. Hefur þér einhvertíman líkað við einhvern en ekki sagt þeim það? ööö jáá.. 

8. Ertu hrædd/ur við skuldbindingar? nei alls ekki..

9. Hefuru kysst einhvern í vikunni? Nei:( engin koss

10. Hefuru átt leyndan aðdáanda? hehe jááá;)

Tíu hitt eða þetta:

1. Ást eða losti? pott þétt ást

2. Sterkt áfengi eða bjór? Það sterka;)

3. Hundar eða kettir? Bæði !

 4. Fáa góða vini eða marga venjulega vini? Fáa en góða.

5. Sjónvarpið eða Internetið? ahh bæði held ég bara

6. Pepsi eða kók? kók

7. Villt nótt úti eða rómantísk nótt inni? Inni.. en væri alltaf gaman að gera hitt líka;)

8. Svart eða hvítt? svart

9. Nótt eða dagur? Nótt

0. Msn eða sími? síminn

Tíu hefur þú einhvertíman:

1. Verið gómuð/gómaður á að læðast út? Nei veistu ég slapp ótúlega vel.. En svo sagði mamma mér um daginn að hún vissi alveg að ég væri að þessu:D hehe

3. Gert eitthvað sem þú sérð eftir? já reyndar..

4. Farið í teygjustökk? nei verð að prófa það samt

5. Farið í húsbát? neeee

6. Klárað heilan kjálkabrjót? neei

7. Viljað eitthvað/einhvern svo mikið að það var sárt? jaaaa...

8. Viljað þinn fyrrverandi/þína fyrrverandi aftur? hehe já það hefur komið fyrir !

9. Grátið útaf því að gæludýrið þitt dó? Já þegar Týra elskan míín dó:'( 

10. Viljað hverfa ? úff já.. ég myndi sko oft viljað það !

Tíu seinustu:

1. Seinasta manneskja sem þú hringdir í: Ingunni systir

Seinasta manneskja sem hringdi í þig: Mútta ;)

Síðasta manneskja sem þú hékkst með: Ehh binna !

4. Síðasta manneskja sem þú faðmaðir: Magneu lind:D

 5. Síðasta manneskja sem þú talaðir við á msn: Kjartan

6. Síðasta manneskja sem þú fórst í bíó með: Fjöldskyldunni.. minus ingunni

7. Síðasta lag sem þú heyrðir? Bad girl at night.. með dave spoon

8. Er þetta síðasta spurningin?  ?????

 9. Er þetta næst síðasta spurningin? veit ekki

0. Hvað varstu í síðasta lífi? Feit svín:D

 

æjji leiddist:D

Guðrun m;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 20:59:29 / bjalla

31.jan



Jæja stelpur förum að reyna að koma einhverju lífi í þetta hérna, sýnist Guðrún vera sú eina sem reynir það?
nú eru allir búnir í prófum og svona, er búin að vera í vikufríi núna og liggja í leti og hafa það fínt.
Þorrablótið var um seinustu helgi og þar var mikið drukkið og dansað, ég tók nú með mér myndavél og tók einhverjar myndir en ég finn hvergi snúruna svo ég get ekki sett þær inní tölvuna, ég hlýt að finna hana bráðlega og þá set ég myndirnar hér inn svo .. stay tuned ;)
þar að segja ef það virkar,myndirnar virðast vera í einhverju rugli :/

Annars bara margt að gerast:

  • Indíana fékk loksins bílprófið í dag
  • Elín Rós 18 ára á morgun!
  • Auðvitað djamm um helgina af því tilefni
  • Ég, Guðrún og Elín að fara til Tenerife í júní! Getum ekki beðið...það verður sjúúúkt8)
  • Styttist í að hún Anna okkar komi heim frá Kína og stoppi í fimm daga áður en hún heldur svo til Þýskalands

Ég veit annars ekki mikið hvað ég á að segja, hef engar sérstakar fréttir svoseem...
MA byrjar aftur á morgun eftir vetrarfrí, verð að segja að ég var ekkert sérstaklega ánægð með stundatöfluna mína, nenni ekki að byrja alltaf klukkan 8:15, hefði alveg viljað fá að sofa lengur þó það hefði ekki verið nema einn dag :P en svona er þetta... þrisvar til fjögur og svona :$

en samt sem áður þá kemst fátt annað að hjá mér þessa dagana en tenerife!
vá hvað ég get ekki beðið, fyrsta útlandaferðin mín loksins!
þetta á eftir að verða yndisleeeeg ferð! það er engin spurning sko:D

en jæja, ég hef eekkert að segja
vildi bara aðeins koma frá mér nokkrum línum hérna!
reyni að koma með þorrablótsmyndirnar inn, svona til að bæta aðeins í safnið;)

 

-binna


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 17:37:27 / bjalla

Nú verður sko tekið á því !!

Jæja þá eru elsku stelpurnar mínar búnar í prófum.. og af því sem ég veit, gekk þeim bara ágætlega sko:D og er það bara æðislegt..

En já var að koma úr ræktinnii, ákvað loksins og dríbba mig eftir jólin ;) ná jólabubbunni af mér.. og hvað haldiði að kellan hafi gert, skráð sig í eikkað heilsuátak, mælingar í hverri viku, fitumælingar og ég veit ekki hvað og hvað !! svo núna verður maður að fara að taka sig á, byrja á fullu í ræktinni og hætta að drekka ! En ætla nú samt að drekka um helgina útaf þorrablótinu ! En svo er það pása fram að 19 mars.. ég verð að standa mig, stelpur bannað að pína mig á djammið nuna! haha8) þá fer ég bara edrú ;)

Já eins og ég sagði áðan þá er ég er að fara að skella mér á þorrblót ásamt mínum ástkæru vinkonum, mínus elín, helga og anna samt.. En já ég er alveg að deyja úr spenningi.. mamma búin að kaupa súmatinn og læti sko, og audda keypti múttan hákarl handa dóttur sinni hvað annað !! haha..:haha: elska gömlu:*

Ég er farin að verða svo duglega að blogga hérna, að það mætti bara halda að ég væri ein með þessa síðu ?? haa !! stelpur..

Hef það samt ekki meira í bili ;).. lov guðrún !!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 00:17:25 / bjalla

Þorrablót ?

Jæja ákvað að taka eitt blogg hérna.. Er bara ein heima.. (reyndar pínu hrædd hehe) en þetta venst:P

En já núna þessa dagana kemst ekki mikið að hjá okkur stelpunum en þessi blessaða útlandaferð okkar:D við erum alveg að missa okkur úr spenningi, erum að ákveða hvert á að fara og svo förum við bráðum að panta ferðina.. erum samt ekki alveg 100% hverjar koma með, en þetta kemur allt í ljós.. en allavega ætla ég sko að fara og elín og binna:D við látum okkur ekki vanta:D

En allavega líf mitt núna seinnustu daga eru svo sem búnir að vera allt í lagi ég er ekki búin að gera mikið, bara fara í skólan, fara heim, læra og hanga í tölvunni.. stelpurnar allar í prófum, ekkert hægt að hafa samband við þær og Anna kellingin skellti sér alla leið til kína með ömmu sinni og afa;) og síðan var hún elsku Björk mín að flytja FRÁ MÉR til RVK.. mmhh ég er ekki alveg sátt með þetta en hún kemur samt aftur heim um næstu helgi :P á þorrablót.. sem á eftir að vera geggjað.. er það ekki stelpur ??

En allaveg hef ekki mikið að segja.. langaði að rugla eikkað smá hérna.. ;)

Guðrún !!


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 18:22:20 / bjalla

Við óskum öllum gleðilegs nýrs ár.. og Takk fyrir það gamla og góða:)

Traustur vinur getur gert kraftaverk..

GlEðIlEg Ár AlLiR sAmAn ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 15:32:47 / bjalla

I'm back

Jæja fyrst að það er komið nýtt ár, þá hef ég ákveðið að byrja að blogga aftur..

Allaveg árið 2007 er hlaupið á brott, ég segi nu bara guð sé lof þetta var nú meira árið.. og við þurfum ekki að pæla meira í því.. En allaveg seinnustu dagarnir á árinu voru mjög fínir.. Audda kom aðfangadagur og ég borðaði eins og svín náttúrulega og svona voru opnaðir pakkar.. og allir fengu þá eikkað fallegt!! Síðan á jóladag var legið í leti og borðað meiri mat og nammi og svona.. síðan um kveldið litaði ég á mér hárið dökkt, eða ingunn litaði það.. hehh það kom nú ekki það vel út svo við lituðum það bara aftur tveim dögum seinna þá varð það miklu betra.. En já síðan á annan í jólum var jólaboð hérna heim, já alltaf gaman að hitta þessa elskulegu ættingja.. Um kveldið hittumst við stelpurnar allar heima hjá mér og skelltum okkur svo til ak á ball í sjallanum þar sem í svörtum fötum gerðu allt vitlaust.. (rosa stuð þar).. En já síðan 28 des fórum við í fimmtugs afmæli hjá Davíð bróðir mömmu (mjög skemmtilegt) Ari sem er ný komin í ættina kom audda með;) til að hitta alla crazzy ættingjana okkar.. En já síðan daginn eftir fórum við Anna til ak og hhittum strákana, skelltum okkur svo á dátakveld á dátanum, og dönsuðum þar af okkur rassinn náttúrulega..

 

Já síðan 30 des ákvöðu stráknarir að skella sér til siglufjarðar á páll óskar og vildu endilega taka okkur með, og audda gátu ég og anna ekki sagt annað en já og skelltum við okkur öll til sigló.. haha það var samt alveg ágætt þarna á sigló og palli alltaf jafn góður náttúrulega;)

 

En síðan runnu áramótinn upp, við borðuðum frekar snemma því ingunn þurfti að fara í vinnu klukkan 7, sigrún og krakkarnir komu öll og Ari var líka með okkur.. við fórum á brennunna.. Síðan um kveldið skutum við upp flugeldum (rosafjör):P eftir það allt var svo partý hérna heima allir að dansa og síðan komu fullt af liði og það var gítarpartý;) síðan var skellt sér á barinn og tekið Jón Geir frænda með sér.. Eftir barinn fóru svo allir til Gumma í partý en svo var bara farið heim að sofa.. Og vaknvað daginn eftir fráveik..

Jæja hef ekki meira að segja.. takk og bless:P   ..Guðrún;)

p.s bætti myndum með:D svona til gamans


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 11:11:45 / bjalla

seinnast bloggið

Jæja mig langar til að blogga smá hérna.. hef ekki gert það lengi, hef bara ekki haft áhuga á því... En allaveg er búið að vera ágætt hjá mér svona síðastliðnu daga, um helgina fórum við stelpurnar á páll óskar í sjallanum og eruði að grínast hvað við skemmtum okkur vel, við alveg dönsuðum af okkur skóna..

Núna er ég lasin og mér alveg hundleiðist hérna ein, er bara að bíða eftir að mamma komi heim svo ég hafi félagskap..

En ætla bara að segja að ég haldi að þessi síða sé að deyja hérna ég held að ég sé bara hætt, þetta sé mitt seinnasta blogg allaveg núna.. stelpur takk fyrir að standa alltaf með mér og vera sannar vinkonur (þær eru vanfundnar) trúið mér.. ELSKA YKKUR mestast.. hehe voða væmin hérna núna en þetta er bara satt...

Bless.. Guðrún !


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 20:09:10 / bjalla

yeah

já vá , var búin að ákveða að blogga því ég hef ekki bloggað svo lengi en allt sem mér var búið að detta í hug að skrifa um er geersamlega horfið.

en jæja , held ég hafi ekki bloggað síðan í águst eða eitthvað, mjööög langt síðan heh .. djöss leti.
mánuðurnir fljúga framhjá og mér finnst allt gerast svo hratt.. kommon það er komin nóvember .. sjitt jólin eru alveg að koma og mér er farið að hlakka agalega til, ég og guðrún skrifuðum meira að segja jóladisk í gærkvöldi :haha:
Síðasta vika var ágæt , var veik þriðjudag og miðvikudag og svo vetrarfrí fimmtudag og föstudag ekkert smá næs. Er reyndar búin að vera að vinna í Olís all day long þessa helgina og skellt mér svo á rúntinn með Guðrúnu minni þar sem við töluðum af okkur allt vit. Var driver fyrir mömmu í gærkvöldi og Guðrún kom með mér , jóladiskurinn í útvarpinu meira og minna en við tókum okkur líka pásu og hlustuðum á annan disk , sem var reyndar mjög fáranlegur líka ;)

 Annars hefur fátt gerst held ég í mínu lífi , skólinn er gersamlega að drekkja manni , dansinn er alveg á fullu og svo bara the reality , kærastinn og vinirnir , hef reyndar mjög sjaldan tíma til þess að anda þannig það er mjög gott að drepast bara uppí rúmmi á kvöldin yfir C.S.I eða eitthvað eftir dansæfingu og heimanám:)

en ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, veit ekki með að láta myndir hérna inn , nýjar myndir inná myspaceinu mínu :) myndalinkar í einhverju fokki. En já annað, Myndavélin mín er látin... hætti bara að opnast allt í einu .. :cry:

er farin að borða , kallinn minn var að elda handa mér :D
hafið það gott :) 

Elín Rós :)



» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 19:17:31 / bjalla

STELPUR VERA MEÐ !

Við höfum fengið það góða boð hjá honum óla að kíkka til eyja á heeeeví djamm laugardaginn 3.nóv...og ég mæli með því að við skellum okkur suður þá helgi og förum á staðinn hans óla á föstudeginum á halloween party!!

  Stelpur við getum ekki mist af þessu! !!!!!!!!!!   ÉG ER EKKI AÐ DJÓKA! ALLAR AÐ KOMA!

 föstudagur:  förum suður, fínt út að borða, tökum okkur til , förum á trix.

laugardagur:   förum til eyja, heví djamm sem óli er að halda þar!!!!  

EKKI SLEPPA ÞESSU STELPUR!! ÉG ER AÐ MEINA ÞAÐ !!

but love you ;***


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 23:17:50 / bjalla

ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma ..

úff ég er búin að vera svoo dugleg!
er að flytja inní nýtt herbergi, þurfti fyrst að mála það og
gera það fínt fyrst , svo ég skellti mér í gömlu mállingafötin frá bæjarvinnunni í forðum, óendanlega fersk í framan með rauðan klút á hausnum og  er búin að vera í því að mála blessaða herbergið,guðrún kíkti til mín í gær og ég henti í hana mállingabuxur og lét hana mála með mér ! alltaf gott að fá hjálp frá góðum vin eða vinkonu ; )  

herbergið var samt lokað í allan daginn a meðan ég var að mála og það er ekki hægt að opna gluggana svo að þeir voru íllilega sveittir, og ég í þvílíku málinngarvímunni .. er líka með litla hausverkinn ! 

en eftir að við vorum búnar að sletta mállingu á veggina vorum við orðnar hungraðar eftir vinnuna, svo það var pantað pizzu og fengið að senda hana á Tjörn,þvílíku sérþarfirnar! hehe en þarna sátum við kellur í mállingafötunum með hvítar mallinga slettur á okkur að eta góða tommu pizzu! 

svo kláruðum við herbergið í dag! duglegu við

 en nóg um það , ég er búin að vera í góðri langri fjagradaga helgi, mjög gott mjööög svo torsdagskveldið fórum við vinkvennur til akureyrar til helgu í nýju fínu íbúðina hennar,fögnuðum henni með góðu kampavíni og dominos pizzu .svo kíktu nokkrir í heimsókn í smá, við stöllur kíktum aðeins á Capone,, þaar var nú ekki margt um manninn, svona tveir aðrir en við,, og plötusnúðurinn að fara að kostum með tónlistina, fyrir okkur, og þessa tvo sem voru þar einning.. fjör..
við fórum nú bara aftur uppí íbúð og vorum þar í smá tíma, svo keyrðum við aftur heim og beint í háttinn.  

fredagurinn vöknuðum við guðrún, yndislega ferskar eins og alltaf, fórum úti búð og keyptum kjútling og góar frenskar,, mhm góóður maturum kvöldið kíktum við í afmæli í húsabakka til Eydísar Granna sem varð 25 ára þann dag,þar var stemmning í fólki , mikið af áfengismagni fengið í gjöf þar á bæ!svo þegar líða tók á kvöldið, færði fólk sig til Dalvíkur og á barinn að sjálfsögðu..ég bara í því að keyra fyrir fulla fólkið um nóttina! klikkað stuð!mun aldrei gera það aftur, ónei .. maður var orðin frekar pirraður í lokin! nú finn ég til með fólkinu sem hefur verið að keyra fyrir mig einhverntíman þegar eg er í glasi! núú kannast maður við þetta ! hehe!en jújú maður var komin háttuð uppí rúmm klukkan fimm um morguninn ! gjörsamlega búin á því .. en maður hefur lúmskt gamanaf þessu ! 

Lördagurinn var sofið rækilega út, vaknað með beinverkim hausverk og einhvern fjandan,eftir tvær góðar verkjatölflur var ég orðin ágæt um kvöldið, naði í Erlu kellu, kíktum á smá rúnt, guðrún kíkti með okkur í smá,, svo var bara leigt sér mynd og kúrað uppí sófa með dúnsængina heittelskuðu! 

söndagurinn. ég byrjaði að tæma herbegrið nirði , svo fórum við guðrún í bíó á " The Kingdom"sem er reyndar ótrúlega góð! hún hefur mikið áhrif á mann .. mæli með henni ! en komið nóg hér ,  

takkogbless : )

 

-björk málari

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 16:16:59 / bjalla

guðrún ofur bloggari..

Ég get svo svarið það þessi síða er alveg að deyja.. :S Það bara bloggar engin hér, nema ég.. STELPUR ?? koma svo !! En jámm..

Þessi helgi er búin að vera mjög fín bara.. ENGIN drykkja skal ég segja ykkur, erum að spara okkur fyrir næstu helgi !!! Þá á víst að halda stelpu-kveld.. sem verður alveg suddalega, ostar, kex, vínber, súkkulaði og kokteilar;) hafa það ofur nææsss...

Á fimmtudaginn fórum við stelpurnar (Elín, Binna, Björk og ég) til Helgu í smá teiti pöntuðum piuzzu og sumir voru að fá sér (helga).. svo komu Vífill, Stubbi, Alli og einhver stelpa kíkti með þeim..síðan skruppum við út og á Capone og svo bara aftur til Helgu og spjölluðum þar heil lengi.. síðan var keyrt heim í klikkaðari ringinu.. og björk gisti svo hjá mér !!!

á föstudaginn skelltum ég og björk okkur í afmæli til Eydísar, hún var 25 ára.. hún leyfði okkur að kíkja smá.. það var bara mjög gaman hjá henni og vorum þar alveg þanngað til afmælið var búið þá skelltum við okkur á dalvík á barinn þar, það var alveg slatti á barnum og alveg ágætt stemming bara frekar hátt í þessari tónlist (allaveg fannst mömmu bjarkar það;) haha.. snilld..

 Á laugardaginn sem sagt í gær var bara heima, ætlaði á ak til Helgu og skella mér í sjallan en síðan fór ég á rúntinn með björk og Erlu og eiginlega datt úr öllu stuði, leygði mér mynd og skellti mér í náttbuxur og hafði það ýkt kósí svona ein heima  !!!

Jæja í dag hefði afi minn verði 80 ára ef kallinn hefði verið á lífi..  Þannig að það var mjög fínt kaffi hérna heima og svo í kveld verður hryggur og svo fínt.. mm mér er bara farið að hlakka til..

En hehe ætla nú ekki að skrifa meira.. hef ekkert að segja frá nema hvað ég er að bralla núna um dagana.. alltaf gaman að lesa það haha..;)

-GUÐRÚN-


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 10:43:57 / bjalla

Róleg helgi

Jæja sit hérna heima á laugardagsmorgni að dund mér í nýju tölvunni minn sem ég er reyndar að missa mig útaf .. ég hreinlega elska þessa tölvu:P úff.. hehe... en jám það er ekki mikið að frétta af mér, í gær var ég bara róleg, ég og Heiða litla systir skelltum okkur í bíó í gærkveldið á myndin superboys sem er reyndar snilld.. haha ég hló örugglega hæst í salnum var alveg að missa mig:P.. en já komum svo bara beint heim og ég skellti mér í tölvunna eins og alltaf núorðið og svo bara í háttinn fyrir 12 (góð stelpa)

Síðan er planið í kveld að skella sér á stóðrétta-ball;) með stúlkukindunum mínum!! En ætla bara að vera edrú.. smá pásu þessa helgi og næstu;) og svo kemur í ljós hvað tímin geymir;) ..

Ég og Björk erum að plana roadtrip-ferð til Rvk, Justin er kannski að koma til landins og ætlum að heimsækja upp á hann, og VERSLA .. og djamma svo í stórborginni kannski eikkað... En þetta kemur allt í ljós þegar ferðin verður alveg orðin plönuð!!

Ingunn systir skellti sér nú suður um helgina með sólveigu og Hjördísi.. þær leygðu sér íbúð.. Ingunn náttúrlega að heimsækja kallinn hvað annað;) Hún er bara alltaf fyrir sunnan núorðið.. haha hún sem fór bara ALDREI suður nennti því veseni ekkert...

En jæja nenni ekki að skrifa meira .. mér fannst ég eikkað svo lonely hérna á laugardagsmorgnni og líka það að mig dreymdi svo mikið í nótt og mikið furðulegt:S skil ekkert í þessum draumum mínum sko... og var svo vöknuðu í morgun fyrir 10 í látunum í þessu fólki hérna á heimilinu..

-Guðrún - MaGg-

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 21:49:07 / bjalla

lauufskálaréttir!

Góða kvöldið,

ég ákvað að taka þetta að mér þar sem ég ætla að segja ykkur aðeins frá helginni hjá nokkrum okkar hérna ;) allavega þá var nú föstudagskvöldið voða rólegt, skruppum bara aðeins á rúntinn, ég, Guðrún, Björk og Anna og plönuðum það sem var framundan hjá okkur og síðan var bara farið snemma í háttinn.

Á laugardagsmorguninn var síðan vaknað eldsnemma og allt græjað og bíllinn hennar Önnu troðfylltur af drasli og síðan lá leið okkar 4 stallanna vestur í Skagafjörð.
Þegar þangað var komið fórum við á Laufskálarétt, en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá eru það stærstu hestaréttir landsins og þar er ávallt mikið um djamm og djús ;) og auðvitað byrjaði gamanið hjá okkur strax þegar vestur var komið og stóð langt fram á nótt.
Réttirnar voru síðan búnar um það leiti sem það var kominn tími fyrir okkur að fara og fá okkur að borða, kíktum aðeins á eitthvað tjaldstæði þar sem Maggi og Egill voru búnir að koma sér fyrir og brunuðum síðan beinustu leið á Sauðárkrók og átum á okkur gat.
-Eftir að við vorum búnar að borða keyrðum við í Hjaltastaði þar sem Helga vinkona Önnu á heima og þar fengum við gistingu, græjuðum okkur þar og svona, þar sem maður var orðinn vægast sagt sjúskaður eftir daginn.
Síðan var haldið í Hofdali (þar sem systir pabba míns býr, og bróðir pabba Guðrúnar) og þar var eitthvað fólk og mikið stuð á öllum.
og síðan var það hápunkturinn... ball með Geirmundi! en ekki hvað !?
Þar var sungið, dansað, skemmt sér og ýmislegt fleira, geirmundur klikkar bara auðvitað ekki;)

Þegar ballið var búið, urðu pínu vandræði þar sem engin okkar hugsaði útí það hvernig við ætluðum að koma okkur aftur heim í Hjaltastaði þar sem það er ekkert voðalega stutt leið. En Bjarni og Veigar björguðu okkur algjörlega, þar sem við biðum í ííísköldum bílnum hans Bjarna til hálf sjö en þá kom Veigar og skutlaði okkur heim í háttinn þar sem það hefur sjaldan verið jafn gott að komast inní hlýjuna.

Síðan var bara vaknað óvenjulega snemma og við lagðar af stað að borða í Varmahlíð um hádegi og síðan bara brunað heim! allar óótrúlega hressar, ferskar og vel útlýtandi ;) haha

en lög helgarinnar voru kláárlega lögin með Johnny Cash  ;D

En stelpur mínar, takk æðislega fyrir þessa frábæru helgi, þessu verður sko seint gleymt;**

en ég kveð að sinni

-binna


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Könnun
Á maður að byrja að blogga aftur?
7 atkvæði

nei
0 atkvæði

alveg sama
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Dagsetning
19. maí 2012